Góðan dag!
Verslunarmannahelgin gengin i garð og þið flest þarna á Íslandi að skemmta ykkur einhversstaðar og vonandi hafið þið það mjög gaman hvað sem þið eruð að gera.
En hér í USA er sólskin og hiti en brasílskar manneskjur koma hingað til Mary á eftir og það verður Partý með okkur hehe.
Ég hef verið 8 vikur hérna eða tvo mánuði og kem heim eftir viku. Það verður ljúft að komast heim til fjölskyldunnar, Perlu og auðvitað hitta fleiri manneskjur og komast í sitt rúm. Það er vika eftir að sumarbúðunum og síðan hef ég 1 og hálfan dag að vera með fólkinu hér áður en ég fer í flug fyrst frá Washington til JFK og þaðan heim til Íslands og vonandi mun allt ganga vel og ég kem heim til ykkar allra.
Í seinustu viku vorum við að læra um Finnland og Danmörku og það var gaman eiginlega mjög gaman því ég held mikið upp á þau lönd.
Þessi vika sem byrjar á morgun og er seinasta vikan í vinnunni lærum við um Thailand og Fillippseyjar sem verður mjög áhugavert því þetta eru lönd sem flestir pæla lítið í en t.d Fillippseyjar hafa verið mikið í fréttum útaf nátturuhamförum og þar er öðruvísi trú þar og fleira örugglega áhugavert að læra um, verður spennandi.
Í gær verð ég að segja ykkur frá því ég fór á fótboltaleik í Ameríku með fjölskyldunni sem ég bý með og fleira fólki á alvöru stadium og þeir sem voru að spila D.C United og Kanas Wisards og Ég held með D.C og þeir unnu 2-0 og þetta var voða gaman og upplifa stemminguna í Amerískum fótboltaleik. Þetta var Soccer leikur ekki football leikur.
Ég hef nú ekki mikið meira að segja í bili en ég þarf að fara og sinna honum Dante annar af hundunum hérna hann vil fá athygli mina hehehe.
Sé ykkur vonandi flest eða heyri í ykkur þegar ég kem heim, hlakka til.
Ykkar Vala